![]() |
|
||||||
|
Job 21:27 Sjá, ég þekki hugsanir yðar og fyrirætlanir, að beita mig ofbeldi. 30 að á degi glötunarinnar er hinum vonda þyrmt, á reiðinnar degi er þeim skotið undan. |
|
Isaiah 1:16 Þvoið yður, hreinsið yður. Takið illskubreytni yðar í burt frá augum mínum. Látið af að gjöra illt, 1:18 Komið, eigumst lög við! _ segir Drottinn. Þó að syndir yðar séu sem skarlat, skulu þær verða hvítar sem mjöll. Þó að þær séu rauðar sem purpuri, skulu þær verða sem ull. |
|
Isaiah 59:2 Það eru misgjörðir yðar, sem skilnað hafa gjört milli yðar og Guðs yðar, og syndir yðar, sem byrgt hafa auglit hans fyrir yður, svo að hann heyrir ekki. James 4:8 Nálægið yður Guði, og þá mun hann nálgast yður. Hreinsið hendur yðar, þér syndarar, og gjörið hjörtun flekklaus, þér tvílyndu. |
|
Matthew 7:13 Gangið inn um þrönga hliðið. Því að vítt er hliðið og vegurinn breiður, sem liggur til glötunar, og margir þeir, sem þar fara inn. 14 Hve þröngt er það hlið og mjór sá vegur, er liggur til lífsins, og fáir þeir, sem finna hann. |
|
Matthew 24:37 Eins og var á dögum Nóa, svo mun verða við komu Mannssonarins. 38 Dagana fyrir flóðið átu menn og drukku, kvæntust og giftust allt til þess dags, er Nói gekk í örkina. 39 Og þeir vissu ekki, fyrr en flóðið kom og hreif þá alla burt. Eins verður við komu Mannssonarins. |
|
Mark 8:36 Hvað stoðar það manninn að eignast allan heiminn, en fyrirgjöra sálu sinni? 37 Eða hvað gæti maður látið til endurgjalds fyrir sálu sína? 38 En þann sem blygðast sín fyrir mig og mín orð hjá þessari ótrúu, syndugu kynslóð, mun Mannssonurinn blygðast sín fyrir, er hann kemur í dýrð föður síns með heilögum englum.`` |
|
Luke 13:24 ,,Kostið kapps um að komast inn um þröngu dyrnar, því margir, segi ég yður, munu reyna að komast inn og ekki geta. 25 Þegar húsbóndinn stendur upp og lokar dyrum og þér takið þá að standa fyrir utan og knýja á dyr og segja: ,Herra, ljúk þú upp fyrir oss!` mun hann svara yður: ,Ég veit ekki, hvaðan þér eruð.` |
|
John 1:12 En öllum þeim, sem tóku við honum, gaf hann rétt til að verða Guðs börn, þeim, er trúa á nafn hans. 3:36 Sá sem trúir á soninn, hefur eilíft líf, en sá sem óhlýðnast syninum, mun ekki sjá líf, heldur varir reiði Guðs yfir honum.`` |
|
John 3:16 Því svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf son sinn eingetinn, til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft líf. Acts 4:12 Ekki er hjálpræðið í neinum öðrum. Og ekkert annað nafn er mönnum gefið um víða veröld, sem getur frelsað oss.`` |
|
1 Corinthians 1:18 Því að orð krossins er heimska þeim er glatast, en oss, sem hólpnir verðum, er það kraftur Guðs. 21 Því þar eð heimurinn með speki sinni þekkti ekki Guð í speki hans, þóknaðist Guði að frelsa þá, er trúa, með heimsku prédikunarinnar. |
|
James 2:19 Þú trúir, að Guð sé einn. Þú gjörir vel. En illu andarnir trúa því líka og skelfast. 1 Peter 4:18 Ef hinn réttláti naumlega frelsast, hvar mun þá hinn óguðlegi og syndarinn lenda? |
|
Matthew 11:28 Komið til mín, allir þér sem erfiði hafið og þungar byrðar, og ég mun veita yður hvíld. Revelation 22:17 Og andinn og brúðurin segja: ,,Kom þú!`` Og sá sem heyrir segi: ,,Kom þú!`` Og sá sem þyrstur er, hann komi. Hver sem vill, hann fær ókeypis lífsins vatn. |